Hver af eftirfarandi útskýringum er rétt? Skoðið hverja röksemdafærslu og ræðið ykkar á milli hvaða útskýring er réttust og færið rök fyrir því.
1. Naglastóll
Ef þið hafið komið í Vísindatjaldið í Húsdýragarðinum í Laugardalnum þá hafið þið eflaust tekið eftir naglastólnum, en það er stóll sem er með beitta nagla upp í loftið í stað sessu. Þetta kann að hljóma hálf ógnvænlega, að setjast á nagla, en ef þið hafið prófað að setjast á stólinn þá vitið þið að þið finnið nánast ekki neitt fyrir því. Hver er ástæða þess?
a) Rassinn á manni er er svo mjúkur að þegar maður sest á svona marga nagla í einu þá finnur maður lítið fyrir því.
b) Loftþrýstingur minnkar eftir því sem ofar er farið. Þess vegna verkar minnstur þrýstingur efst á nöglunum.
c) Þrýstingurinn í andrúmslofti verkar í allar áttir og vegna fjölda nagla þá dreifist þrýstingur frá þeim í allar áttir en ekki aðeins beint upp í loftið.
d) Vegna þess hversu margir naglarnir eru, þá er flatarmál þeirra allra til samans nokkuð stórt. Þyngd líkama þíns dreifist á allt þetta svæði og þar af leiðandi er þrýstingurinn minni.
1. Stíflur
Þegar stíflur eru byggðar, t.d. til að útbúa miðlunarlón vegna vatnsfallsvirkjana, þá eru þær útbúnar þannig að veggir þeirra eru þykkastir við botn stíflunnar. Hver er ástæða þess?
a) Það er mest af vatni á botni lónsins og þess vegna þurfa veggirnir að vera þykkastir þar.
b) Þrýstingur í vökva eykst eftir því sem neðar dregur. Þar sem þrýstingurinn er mestur eru veggirnir þykkastir.
c) Loftþrýstingur ýtir á útveggi stíflunnar og þess vegna þurfa veggir stíflunnar að vera þykkir og sérstaklega við botninn.
d) Þrýstingur í vökvum verkar aðeins niður á við og þess vegna er þrýstingurinn mestur við botn stíflunnar.
3. Kafbátar
Kafbátar eru þeim eiginleikum búnir að þeir geta bæði siglt ofansjávar og neðan sjávar. Hver er ástæða þess?
a) Kafbátar hafa sérstaka tanka sem þeir geta fyllt af vatni eða lofti og þannig aukið eða minnkað eðlismassa sinn.
b) Kafbátar hafa kröftuga hreyfla sem geta stýrt þeim í kaf eða upp á yfirborðið.
c) Kafbátar nýta sér það að þrýstingur í vökvum verkar í allar áttir. Vegna þess þá verkar þrýstingur ofan á kafbáta þegar þeir eru neðan sjávar sem heldur þeim í kafi. Sömuleiðis verkar þrýstingur undir þá þegar þeir eru ofan sjávar sem heldur þeim á floti.
d) Flotkraftur sem verkar á kafbáta er breytilegur eftir því hversu ofarlega eða neðarlega þeir eru í vökva.
Svarið eftirfarandi spurningum:
James Bond
Kvikmyndin Goldfinger frá árinu 1964 fjallar um breska spæjarann James Bond. Í einu atriði myndarinnar mætir illmennið Auric Goldfinger örlögum sínum eftir baráttu við Bond. Horfið á atriðið og takið eftir því hvernig Goldfinger endar lífdaga sína.
Hvað er það sem veldur því að Goldfinger „sogast” út úr flugvélinni? Er það vegna þess að loftið fyrir utan flugvélina sogar hann út eða er það vegna þess loftið inn í vélinni ýtir honum út?
Eðlismassi
Hvað gerist ef þú setur viðarbút sem vegur 5 kíló í vatn? Flýtur hann eða sekkur? En ef þú setur alveg jafn stóran járnbút sem hefur sama massa (5 kíló) í vatn? Flýtur járnbúturinn eða sekkur hann? Rökstyddu af hverju þetta gerist.
17. júní
Á 17. júní er vinsælt að vera með blöðrur. Yfirleitt svífa þessar blöðrur en falla ekki til jarðar. Af hverju er það?
Ef þú myndir fylla blöðru með því að blása í hana, myndi sú blaðra svífa um eða falla til jarðar? Útskýrðu nánar.